Öryggi
Tetra
Tetra talstöðvakerfi
Tetra talstöðvarkerfið er öflugt, miðstýrt hópfjarskiptakerfi, sérsniðið að þörfum viðbragðsaðila en kerfið er mikilvirkt stjórntæki fyrir hröð og örugg samskipti milli einstaklinga og hópa ásamt flotastjórnun með hjálp ferilvöktunar. Kerfið er samtengt, stafrænt landsþekjandi talstöðvakerfi og getur þannig tengt saman aðila alls staðar á landinu. Margir aðilar geta notað Tetra samtímis án truflana og hægt er að tengja aðila saman eftir þörfum.
Kerfið hefur frá upphafi stækkað smám saman og nær nú til meginhluta landsins. Áfram er unnið að stækkun kerfisins eftir því sem aðstæður krefjast. Fyrir liggur að Tetra þjónustan verður í boði a.m.k. næstu árin, enda hefur hún reynst afar vel fyrir notendur og stuðlað að auknu öryggi.
Fjöldi sendastaða í Tetra kerfinu eru um 215 á landinu öllu þar af eru tæplega 20 sendastaðir á höfuðborgarsvæðinu. Tetra stöðvar má einnig nota utan þjónustusvæðisins í beinu sambandi (Direct Mode) við aðrar Tetra stöðvar í nágrenninu.
Korda annast rekstur Tetra kerfisins. Mikið er lagt upp úr rekstraröryggi kerfisins og er sólarhringsvöktun á ástandi þess. Tetra kerfið er byggt á kerfi frá Motorola og sérstaklega hannað fyrir viðbragðsaðila sem og þá sem sinna rekstri mikilvægra innviða, svo sem sjúkrahús, orkufyrirtæki, Isavia, Vegagerðina og fleiri.
Aðgerðarhópar
Fyrir nokkrum árum var tekið upp samvinnuband Tetra kerfisins sem kallað er „Bláa bandið“. Þegar aðgerð er í gangi er þeim hópum sem hlut eiga að máli úthlutað viðeigandi samvinnubandi sem er sérstakur talhópur sem þeir nota við samskipti sín á milli.
Bláa bandið inniheldur möppurnar „Blár 1“ til „Blár 9“ og er hver mappa merkt einu lögregluembætti á Íslandi sem eru 9 talsins. Þannig tilheyrir Blár 1 lögregluembættinu á höfuðborgarsvæðinu, 2 lögregluembættinu á Suðurnesjum, 3 lögregluembættinu á Vesturlandi, 4 lögregluembættinu á Vestfjörðum, 5 lögregluembættinu á Norðurlandi vestra, 6 lögregluembættinu á Norðurlandi eystra, 7 lögregluembættinu á Austurlandi, 8 lögregluembættinu á Suðurlandi og 9 lögregluembættinu í Vestmannaeyjum.
Öllum stærri aðgerðum viðbragðsaðila er stjórnað um Bláa bandið.
Skilgreindir aðgangar Ríkislögreglustjóra eru þrír talsins og auðkenndir hver með sínum lit, rauður, gulur og blár. Aðgengi hópanna að talhópunum er mismunandi eftir mikilvægi. Mestan aðgang hefur rauði hópurinn sem hefur aðgang að öllum talhópum, sá blái kemur næstur og minnstan aðgang hefur guli hópurinn.
Eftirtaldar stofnanir eru í hverjum hópi:
Rauður
Heilbrigðisstofnanir, Landhelgisgæslan, Lögreglan, Neyðarlínan varðstofa, sjúkraflutningar og slökkvilið.
Blár
Aðgerðastjórnir, björgunarsveitir, Isavia, Rauði krossinn ásamt öllum þeim sem aðilum sem tilheyra rauða hópnum.
Gulur
Fjarskiptafyrirtæki, hafnir, Jarðvísindastofnun, Strætó, sveitarfélög, Veðurstofan, Vegagerðin, veitustofnanir og þjóðgarðar, ásamt öllum þeim sem tilheyra rauða og bláa hópnum.
Rauður
Heilbrigðisstofnanir, Landhelgisgæslan, Lögreglan, Neyðarlínan varðstofa, sjúkraflutningar og slökkvilið.
Blár
Aðgerðastjórnir, björgunarsveitir, Isavia, Rauði krossinn ásamt öllum þeim sem aðilum sem tilheyra rauða hópnum.
Gulur
Fjarskiptafyrirtæki, hafnir, Jarðvísindastofnun, Strætó, sveitarfélög, Veðurstofan, Vegagerðin, veitustofnanir og þjóðgarðar, ásamt öllum þeim sem tilheyra rauða og bláa hópnum.
Þegar aðgerð er í gangi er hópum úthlutað úr viðeigandi samvinnubandi og fara Korda og Fjarskiptamiðstöð Ríkislögreglustjóra með úthlutun þeirra.

Neyðarhnappurinn
Hvað gerist ef ýtt er á neyðarhnappinn?
Þegar ýtt er á neyðarhnappinn fer tækið í svokallaðan neyðarham og eru þá neyðarboð send til vaktstöðvar Neyðarlínunnar og fær þá notandinn sem ýtir á neyðarhnappinn samstundis efsta forgang í kerfinu, nema notandinn hafi ákveðið annað. Stöðin gefur jafnframt frá sér hljóð og skjárinn verður rauður uns slökkt hefur verið á neyðarboðunum. Hljóðneminn framan á stöðinni verður virkur og er þá hægt að tala við neyðarvörð í hálfa mínútu án þess að ýta á sendihnappinn. Þrátt fyrir þetta er hægt að halda áfram talstöðvarsamskiptum á öðrum talhópum.
Ef ýtt er á neyðarhnappinn fyrir mistök hefur það engar afleiðingar fyrir handhafa Tetra stöðvarinnar. Hins vegar er mikilvægt þegar slíkt hendir að viðkomandi útskýri fyrir neyðarverði að engin neyð sé í gangi, til þess að ekki verði brugðist við að óþörfu.
Innanhúss dekkun
Í sumum tilvikum hendir að Tetra þjónustan nái ekki inn í hús, svo sem rammgerðar byggingar, kjallara og byggingar með K-gleri sem kastar frá sér bylgjum svo einhver dæmi séu nefnd. Í þeim tilvikum er hægt að setja upp endurvarpa innanhúss sem dregur merkið inni í bygginguna. Óheimilt er án samráðs við Korda að setja upp slíkan búnað, því að tryggja verður að slíkir endurvarpar virki rétt og valdi ekki truflunum á Tetra samskiptum í nágrenninu.
Sala og þjónusta
Eftirfarandi aðilar selja og þjónusta Tetra-búnað frá Motorola:
Þarftu frekari upplýsingar?
Korda selur aðeins dulkóðaðar Tetra stöðvar til viðbragðsaðila, stofnana og fyrirtækja. Hjá Korda eru ekki í boði aukahlutir fyrir Tetra stöðvar. Hafðu samband fyrir frekari upplýsingar