Fjarskipti
Innviðir
Öryggi
Líflína fjarskipta á Íslandi
Korda rekur mikilvæga fjarskipta- og öryggisinnviði sem tengja Ísland við umheiminn

Innviðir
Öruggar tengingar Íslands við umheiminn
Korda rekur mikilvæga fjarskipta- og öryggisinnviði sem tengja Ísland við umheiminn og tryggja örugg og áreiðanleg samskipti innanlands. Innviðir Korda eru hluti af tæknilegu baklandi samfélagsins og styðja við þjónustu og verðmætasköpun allan sólarhringinn.
Korda rekur sæstrengina IRIS, DANICE og FARICE-1 sem tengja Ísland við alþjóðleg fjarskiptanet. Jafnframt er hafinn undirbúningur að fjórða sæstrengnum, AUÐI, sem mun styrkja tengingar Íslands enn frekar og styðja við verðmætasköpun í nútíma hagkerfi og uppbyggingu gagnavera hér á landi.

Öryggi
Tetra
Tetra talstöðvarkerfið er öflugt, miðstýrt hópfjarskiptakerfi, sérsniðið að þörfum viðbragðsaðila en kerfið er mikilvirkt stjórntæki fyrir hröð og örugg samskipti milli einstaklinga og hópa ásamt flotastjórnun með hjálp ferilvöktunar. Kerfið er samtengt, stafrænt landsþekjandi talstöðvakerfi og getur þannig tengt saman aðila alls staðar á landinu. Margir aðilar geta notað Tetra samtímis án truflana og hægt er að tengja aðila saman eftir þörfum.
Fréttir
2. nóvember 2026
Fjögur verkefni til að bæta samband og auka öryggi
Öryggisfjarskipti hafa gert samning við innviðaráðuneytið sem nær til fjögurra verkefna á Vestfjörðum, Vesturlandi og Austurlandi um að styrkja fjarskiptainnviði og draga úr hættu á alvarlegum þjónustutruflunum.
26. október 2026
Nýr fjarskipta sæstrengur Korda kemur á land í Meðallandi
Fjarskipta sæstrengurinn AUÐUR, sem Korda undirbýr milli Íslands og Skotlands, mun koma á land í Meðallandi, sunnan Kirkjubæjarklausturs.
19. október 2026
Undirbúningur hafinn að nýju neyðar- og öryggisfjarskiptakerfi fyrir viðbragðsaðila á Íslandi
Dómsmálaráðherra greindi frá því að undirbúningur fyrir næstu kynslóðar sameiginlegs fjarskiptakerfis fyrir öryggis- og neyðarþjónustu á Íslandi sé hafinn í opnunarávarpi sínu á Björgun 2026 í Hörpu.
Um Korda
Korda rekur mikilvæga fjarskipta- og öryggisinnviði sem tengja Ísland við umheiminn.