Korda

Korda er líflína fjarskipta á Íslandi.

Illustration

Korda varð til við sameiningu Farice, tæknihluta Neyðarlínunnar og Öryggisfjarskipta og rekur mikilvæga fjarskipta- og öryggisinnviði sem tengja Ísland við umheiminn, styðja við örugg samskipti innanlands og skapa tæknilegt bakland fyrir þjónustu sem samfélagið treystir á allan sólarhringinn og er undirstaða verðmætasköpunar í nútímahagkerfi.

Stafrænir innviðir fyrir Ísland

Félagið annast rekstur fjarskiptasæstrengja og tengir fjarskiptafyrirtæki og gagnaver við umheiminn en félagið rekur þrjá öfluga fjarskiptastrengi: IRIS, DANICE og FARICE-1.

Þá hefur félagið hafið undirbúning að lagningu fjórða fjarskiptastrengsins sem sem verður nefndur AUÐUR. Þannig leikur Korda lykilhlutverk í uppbyggingu fjarskiptainnviða til framtíðar þar sem Ísland verður sífellt eftirsóknarverðari staður til rekstrar gagnavera með græna orku og hagstætt loftslag.

Hluthafar

Korda er í 100% eigu íslenska ríkisins.

Stjórnarformaður og framkvæmdastjóri

Þorvarður Sveinsson

Framkvæmdastjóri

Marta Eiríksdóttir

Stjórnarformaður

Stefnur

Korda hefur skuldbundið sig til að veita trausta og áreiðanlega þjónustu á sviði öryggis- og neyðarinnviða og fjarskipta, studda nýjustu tækni. Félagið hefur gæði þjónustu, upplýsingaöryggi, vernd persónuupplýsinga, ábyrga umhverfis- og samfélagsvitund og vandaða stjórnarhætti að leiðarljósi, á traustum grunni áhættustýringar. Stefnur fyrir hvert þessara sviða mynda sameiginlegan ramma til að tryggja ábyrga, örugga og vandaða þjónustu.