Innviðir

Aðstöðuleiga á fjarskiptastöðum

Eitt af mikilvægum þjónustuhlutverkum Korda er aðstöðuleiga á fjarskiptastöðum. Hægt er að leigja aðstöðu fyrir fjarskiptasenda, loftnet og annan fjarskiptabúnað vítt og breitt um landið.

150 fjarskiptastaðir

Korda rekur um 150 fjarskiptastaði víða um land þar sem er aðstaða fyrir fjarskiptabúnað.

Sú aðstaða fyrir fjarskiptasenda er af ýmsum stærðum og gerðum og er í flestum tilvikum um að ræða hús og við það mastur fyrir loftnet, en á sumum staðanna er aðeins mastur eða staurar.
Hafðu samband með því senda fyrirspurn á sala@korda.is fyrir nánari upplýsingar um pláss fyrir búnað, staðsetningu og leiguverð.

Almennir viðskiptaskilmálar