2. nóvember 2026

Fjögur verkefni til að bæta samband og auka öryggi

Innviðaráðherra undirritaði þann 30. október tvo samninga um uppbyggingu og styrkingu fjarskiptainnviða á fimm stöðum um landi. Annar samningurinn er við Öryggisfjarskipti dótturfélag Korda og nær til fjögurra verkefna á Vestfjörðum, Vesturlandi og Austurlandi. Verkefnin miða að því að styrkja fjarskiptainnviði, draga úr hættu á alvarlegum þjónustutruflunum og auka útbreiðslu farnets á stofnvegum og fjölförnum ferðamannastöðum.

  • Dynjandisheiði – Komið verður upp nýrri fjarskiptastöð sem mun þjóna bæði neyðar- og öryggisfjarskiptum og almennri farnetsþjónustu. Framkvæmdin tengist meðal annars breytingu vegarins um heiðina í heilsársveg. Framlag ráðuneytisins verður nýtt til lagningar rafstrengs og ljósleiðara að stöðinni.
  • Látrabjarg – Lagður verður ljósleiðari frá Breiðuvík að fjarskiptastöðinni á Urðarhjalla til að auka rekstraröryggi fjarskipta á svæðinu. Stöðin þjónar svæðinu umhverfis Látrabjarg og stórum hafsvæðum vestan þess og á Breiðafirði. Ljósleiðarinn mun einnig geta nýst fyrirhugaðri veðurratsjárstöð Veðurstofu Íslands.
  • Glymur í Hvalfirði – Byggð verður ný fjarskiptaaðstaða sem bætir farnetssamband bæði á stofnveginum um Hvalfjarðarbotn og á fjölfarinni gönguleið að Glymi. Takmarkað samband á gönguleiðinni hefur meðal annars valdið erfiðleikum þegar slys hafa orðið.
  • Mjóifjörður – Lagður verður viðbótarljósleiðari yfir um Brekkugjá til að auka öryggi fjarskipta við Mjóafjörð og Dalatanga. Fyrir nokkru sleit grjótskriða eina ljósleiðarann inn á svæðið og olli sambandsrofi um tíma. Með tveimur aðskildum lagnaleiðum verður dregið úr hættu á að slíkt endurtaki sig.

Öryggisfjarskipti annast framkvæmd verkefnanna fjögurra eftir atvikum í samstarfi við fjarskiptafyrirtæki og aðra aðila. Framlag ráðuneytisins til stofnkostnaðar er 32,6 milljónir kr.

Sjá nánar á vef stjórnarráðsins.