19. október 2026
Undirbúningur hafinn að nýju neyðar- og öryggisfjarskiptakerfi fyrir viðbragðsaðila á Íslandi
Vinna við undirbúning næstu kynslóðar sameiginlegs fjarskiptakerfis fyrir öryggis- og neyðarþjónustu á Íslandi er hafinn. Dómsmálaráðherra Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir greindi frá þessu í opnunarávarpi sínu á ráðstefnunni Björgun 2026 í Hörpu fyrir helgi.Fyrirtækið Korda leiðir vinnuna og er tæknilegur undirbúningur hafinn.
Nýtt öryggis- og neyðarfjarskiptakerfi sem hefur vinnuheitið FÖNix mun byggja á nýjustu fjarskiptatækni og taka mið af sambærilegum kerfum í nágrannalöndunum að teknu tilliti til legu landsins, fámennis og strjálbýlis til að tryggja öryggi almennings á Íslandi.
Sem hluti af FÖNix-verkefninu hefur Korda kannað möguleika nýrrar tækni á sviði neyðar- og öryggisfjarskipta. Liður í þeirri vinnu er m.a. tæknilegfýsileikaskoðun á tæknilausnum og virk þátttaka í alþjóðlegu samstarfi.
Hluti undirbúningsvinnunnar hófst í lok september í samvinnu við ríkislögreglustjóra og Office of the Government Chief Information Officer (OGCIO) á Írlandi. Í verkefninu eru prófaðar nýjar breiðbandslausnir sem byggja á 4G og 5G fjarskiptatækni semtryggja örugg og öflug samskipti og upplýsingamiðlun viðbragðsaðila, meðal annars þegar fjarskiptainnviðir verða fyrir álagi eða truflunum.
Örugg samskipti við krefjandi aðstæður
Meðal lausna sem eru til skoðunar eru fjölbreyttar tæknilausnir svo sem gervihnattatengingar semog staðbundin fjarskiptakerfi sem geta aukið rekstraröryggi. Horft verður til samstarfs með fjarskiptafyrirtækjum um nýtingu á núverandi 4G og 5G búnaðar eins og kostur er. Einnig er könnuð tækni sem sameinar upplýsingar úr ólíkum kerfum, svo sem myndstreymi frá drónum og myndavélum, staðsetningarupplýsingar og önnur rauntímagögn, til að styðja ákvarðanatöku og samhæfingu á vettvangi.
„Ný tækni opnar fjölmarga möguleika til að efla öryggi og bæta samskipti viðbragðsaðila. Með þessu samstarfi getum við prófað og þróað nýjar lausnir og metið hvernig þær geta stutt við og styrkt þá mikilvægu fjarskiptainnviði sem fyrir eru“, segir Sigurður Ingi Hauksson, sviðsstjóri neyðar- og öryggisfjarskipta hjá Korda.
Korda rekur meðal annars TETRA-fjarskiptakerfið sem gegnir lykilhlutverki í öruggum samskiptum viðbragðsaðila um land allt. Þátttaka félagsins í verkefninu er liður í að kanna hvernig ný tækni geti nýst við framtíðarþróun neyðar- og öryggisfjarskipta á Íslandi.
Undirbúningur að nýju neyðar- og öryggisfjarskiptakerfi er þegar hafinn og gert er ráð fyrir að prófanir á nýjum tæknilausnum fari fram á næsta ári. Samkvæmt fyrirliggjandi áætlunum gæti fyrsti fasi nýs fjarskiptakerfis verið tekinn í notkun árið 2029 og kerfið komið í fulla notkun á árunum 2030-2031.
Fleiri fréttir
5. október 2026
Samrunanum lokið og tímamótum hjá Korda fagnað
Samruna Farice, Öryggisfjarskipta og tæknihluta Neyðarlínunnar er lokið og sameinað félag hefur hafið starfsemi undir merkjum Korda. Áfanganum fagnað með fjármálaráðherra.
1. september 2026
Korda tekur til starfa 1. september
Sameinað félag Farice, Öryggisfjarskipta og tæknihluta Neyðarlínunnar mun bera nafnið Korda og verður líflína neyðar- og öryggisfjarskipta á Íslandi og tenginga við umheiminn.
23. apríl 2026
Farice undirbýr nýjan sæstreng milli Íslands og Skotlands
Fyrirtækið Farice, sem á og rekur sæstrengina FARICE-1, DANICE og ÍRIS, hefur hafið undirbúning að nýjum sæstreng sem mun liggja milli suðurhluta Íslands og Skotlands.