26. október 2026
Nýr fjarskipta sæstrengur Korda kemur á land í Meðallandi
Fjarskipta sæstrengurinn AUÐUR, sem Korda undirbýr milli Íslands og Skotlands, mun koma á land í Meðallandi, sunnan Kirkjubæjarklausturs. Í Skotlandi verður lendingarstaðurinn í Irvine-flóa við Clydefjörð, vestan Glasgow. Stefnt er að því að strengurinn verði tekinn í notkun um áramótin 2029–2030.
Korda mun jafnframt byggja upp nýjan afhendingarstað fyrir fjarskiptaþjónustu í Glasgow. Þaðan verður boðið upp á fjölbreyttar tengileiðir áfram til London, Norðurlanda, meginlands Evrópu og Írlands.
Sjávarbotnsrannsóknir eru áætlaðar sumarið 2027. Útboð vegna ljósleiðaraleiða á landi frá lendingarstaðnum á Íslandi að afhendingarstöðum þjónustu stendur nú yfir og stefnt er að því að framkvæmdir hefjist sumarið 2027.
Korda hefur valið Pioneer Consulting sem aðalráðgjafa verkefnisins. Ráðgjafafyrirtækið mun styðja Kordavið verkefnastýringu og hafa umsjón með útboðum, yfirferð tilboða og vali á verktökum og birgjum vegna meðal annars sjávarbotnsrannsókna, framleiðslu og lagningar strengsins.Pioneer Consulting er alþjóðlegt ráðgjafar- og verkfræðifyrirtæki sem hefur frá 1998 sérhæft sig í sæstrengsverkefnum, frá frumathugunum og hönnun til framkvæmda og verkefnastýringar.
Með AUÐI mun Korda styrkja tengingar Íslands við alþjóðleg fjarskiptanet og fjölga leiðum fyrir gagnaflutninga milli Íslands og Evrópu.

Fleiri fréttir
19. október 2026
Undirbúningur hafinn að nýju neyðar- og öryggisfjarskiptakerfi fyrir viðbragðsaðila á Íslandi
Dómsmálaráðherra greindi frá því að undirbúningur fyrir næstu kynslóðar sameiginlegs fjarskiptakerfis fyrir öryggis- og neyðarþjónustu á Íslandi sé hafinn í opnunarávarpi sínu á Björgun 2026 í Hörpu.
5. október 2026
Samrunanum lokið og tímamótum hjá Korda fagnað
Samruna Farice, Öryggisfjarskipta og tæknihluta Neyðarlínunnar er lokið og sameinað félag hefur hafið starfsemi undir merkjum Korda. Áfanganum fagnað með fjármálaráðherra.
1. september 2026
Korda tekur til starfa 1. september
Sameinað félag Farice, Öryggisfjarskipta og tæknihluta Neyðarlínunnar mun bera nafnið Korda og verður líflína neyðar- og öryggisfjarskipta á Íslandi og tenginga við umheiminn.