1. september 2026

Korda tekur til starfa 1. september

Sameinað félag Farice, Öryggisfjarskipta og tæknihluta Neyðarlínunnar mun bera nafnið Korda og verður líflína neyðar- og öryggisfjarskipta á Íslandi og tenginga við umheiminn.

Sameinað félag Farice ehf., Öryggisfjarskipta ehf. og tæknihluta Neyðarlínunnar ohf. mun taka formlega til starfa 1. september næstkomandi undir nafninu Korda. Ákvörðun um sameiningu félaganna var kynnt í desember 2025. Farice og tæknihluti Neyðarlínunnar renna saman í móðurfélagið Korda ehf. og verður Öryggisfjarskipti ehf. rekið sem dótturfélag Korda. Korda verður í fullri eigu ríkisins.

Korda rekur fjarskiptakerfi sem eru undirstaða stafræns samfélags og mikilvægrar verðmætasköpunar á Íslandi ásamt því að vera tæknilegur bakhjarl Neyðarlínunnar. Korda er því líflína fjarskipta Íslands.

Korda mun annast rekstur fjarskiptasæstrengja sem tengja Ísland við umheiminn, Tetra-öryggisfjarskiptakerfisins auk tæknilegra kerfa sem styðja við neyðarþjónustu, almannavarnir, sjófarendur, viðbragðsaðila, fjarskiptafyrirtæki, opinbera aðila og aðra mikilvæga starfsemi. Einnig rekur Korda varaleið fjarskipta við umheiminn um gervihnattakerfi.

Markmið sameiningarinnar er að styrkja rekstraröryggi, net- og upplýsingaöryggi og viðnámsþrótt mikilvægra innviða gagnvart netógnum, náttúruvá og öðrum rekstraráhættuþáttum. Jafnframt skapast betri forsendur til að þróa þjónustu og lausnir fyrir innlenda sem erlenda viðskiptavini, viðbragðsaðila og samfélagið í heild.

„Með Korda verður til öflugt fjarskiptafélag með skýrt hlutverk: að tryggja öruggar, áreiðanlegar og öflugar fjarskiptatengingar fyrir Ísland og er undirstaða verðmætasköpunar í nútímahagkerfi. Við sameinum rekstur mikilvægra fjarskiptakerfa, sérhæfða þekkingu og öflug stoðkerfi í einni heild. Það styrkir rekstraröryggi, eykur viðnámsþrótt og bætir getu okkar til að mæta auknum öryggiskröfum og áskorunum og tækifærum framtíðar,“ segir Þorvarður Sveinsson, framkvæmdastjóri Farice og verðandi framkvæmdastjóri Korda.

Á ensku kallast félagið Korda Networks.

Korda er gamalgróið íslenskt orð sem merkir strengur. Nafnið þykir eiga vel við þar sem félagið mun annast rekstur mikilvægra fjarskipta- og öryggiskerfa sem tengja Ísland við umheiminn, styðja við örugg samskipti innanlands og skapa tæknilegt bakland fyrir þjónustu sem samfélagið allt treystir á allan sólarhringinn.