22. desember 2025
Farice, Öryggisfjarskipti og tæknihluti Neyðarlínunnar sameinast
Fjarskipta- og öryggisinnviðir landsins styrkjast
Ákveðið hefur verið að sameina Farice ehf., Öryggisfjarskipti ehf. og tæknihluta Neyðarlínunnar ohf.
Félögin þrjú sem öll eru í eigu ríkisins, sinna hvert um sig lykilhlutverkum í rekstri alþjóðlegra og innlendra fjarskipta, neyðarsamskipta, öryggiskerfa og þjónustu við almenning, viðbragðsaðila og viðskiptavini. Með því að sameina rekstur, sérhæfða tækniþekkingu og stoðkerfi verður til sterkari og skilvirkari heild, dregið er úr tvíverknaði og viðnámsþróttur aukinn gagnvart netógnum, náttúruvá og almennum rekstraráhættuþáttum.
Markmið sameiningarinnar er tvíþætt og endurspeglast í skýrum hlutverkum fyrirtækjanna Farice og Neyðarlínunnar. Farice verður sterkt fjarskipta- og innviðafyrirtæki sem rekur m.a. fjarskiptasæstrengi og Tetra öryggisfjarskiptakerfið og verður tæknilegt bakland fyrir neyðarviðbragð, almannavarnir og mikilvæga innviði á Íslandi. Neyðarlínan mun eftir sem áður sinna neyðarnúmerinu 112 og einbeita sér enn frekar að því meginhlutverki sínu, að tryggja skjót, traust og fumlaus viðbrögð þegar neyðarástand skapast. Engar uppsagnir verða vegna sameiningarinnar.
Þjónusta neyðarsvörunar 112 óbreytt
Engin breyting verður á þjónustustigi neyðarsvörunar Neyðarlínunnar né símanúmerinu 112. Starfsfólk neyðarsvörunar verður áfram starfsfólk Neyðarlínunnar og rík áhersla er lögð á að Neyðarlínan verði áfram sjálfstætt félag sem sækir tækni- og stoðþjónustu til Farice samkvæmt þjónustusamningi.
Með því að færa tækniþjónustu og innviðarekstur til Farice getur Neyðarlínan einbeitt sér enn frekar að sínu meginhlutverki sem er neyðarsvörun í samræmda neyðarnúmerið 112 og tryggja áfram skjótt og traust viðbragð þegar neyðarástand skapast.“ segir Jón Svanberg Hjartarson, framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar.
Áhersla á öryggi og samfellu
Sameiningin er svar við auknum öryggiskröfum, hraðri tækniþróun og flóknara öryggisumhverfi, bæði hér á landi og á alþjóðavettvangi.
Sameinaða fjarskiptafyrirtækið Farice verður sterkt tækni- og innviðafyrirtæki sem rekur m.a. þrjá fjarskiptasæstrengi sem tengja Ísland við Evrópu auk þess að reka Tetra kerfið sem innlend öryggisfjarskipti byggja á og mun áfram veita viðskiptavinum sínum örugga og góða þjónustu.
Með sameiningunni styrkist net- og upplýsingaöryggi ásamt því að tryggja meira rekstraröryggi og efla viðbragðsgetu í áföllum. Jafnframt skapast betri forsendur til að þróa nýjar lausnir fyrir viðskiptavini, viðbragðsaðila og samfélagið í heild. Þá verður félagið betur í stakk búið til að standa undir aukum kröfum eftirlitsaðila svo sem við innleiðingu evrópsku NIS2-löggjafarinnar.
„Með sameiningunni er verið að styrkja grunnstoðir fjarskipta- og öryggisinnviða á Íslandi. Við sameinum sérhæfða þekkingu, mikilvæga innviði og stoðkerfi í eina samstæðu með skýra ábyrgð. Það eykur öryggi, bætir þjónustu og eflir getu okkar til að mæta kröfum og áskorunum framtíðar. Þannig er verið að treysta lykilinnviði landsins, tryggja áreiðanlega þjónustu og bæta viðnámsþrótt við breyttu öryggisumhverfi, tæknilegum áskorunum og náttúruvá.“ segir Þorvarður Sveinsson, framkvæmdastjóri Farice
Viðskiptin eru með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.
Um félögin
- Neyðarlínan ohf.
Rekur neyðarnúmerið 112, móttöku og úrvinnslu neyðarbeiðna, miðlun viðvarana til almennings og samskipta- og samhæfingarlausnir fyrir viðbragðsaðila og sjófarendur. - Farice ehf.
Á og rekur þrjá fjarskiptasæstrengi sem tengja Ísland við Evrópu og rekur varaleið fjarskipta um gervihnetti fyrir mikilvæg fyrirtæki og stofnanir. - Öryggisfjarskipti ehf.
Eiga og reka öruggt fjarskiptanet og fjarskiptastöðvar fyrir löggæslu, slökkvilið, heilbrigðisþjónustu, aðra viðbragðsaðila og sjófarendur.
Nánari upplýsingar
Þorvarður Sveinsson, framkvæmdastjóri Farice
Sími: 6699222
Netfang: vardi@korda.is
Jón Svanberg Hjaltason, framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar
Sími: 8948836
Netfang: jsh@112.is
Fleiri fréttir
1. september 2026
Korda tekur til starfa 1. september
Sameinað félag Farice, Öryggisfjarskipta og tæknihluta Neyðarlínunnar mun bera nafnið Korda og verður líflína neyðar- og öryggisfjarskipta á Íslandi og tenginga við umheiminn.
23. apríl 2026
Farice undirbýr nýjan sæstreng milli Íslands og Skotlands
Fyrirtækið Farice, sem á og rekur sæstrengina FARICE-1, DANICE og ÍRIS, hefur hafið undirbúning að nýjum sæstreng sem mun liggja milli suðurhluta Íslands og Skotlands.