23. apríl 2026
Farice undirbýr nýjan sæstreng milli Íslands og Skotlands
Sæstrengurinn fær nafnið AUÐUR
Reykjavík 23. apríl 2026
Fyrirtækið Farice, sem á og rekur sæstrengina FARICE-1, DANICE og ÍRIS, hefur hafið undirbúning að nýjum sæstreng sem mun liggja milli suðurhluta Íslands og Skotlands. Verkefnið er liður í áframhaldandi uppbyggingu fjarskiptainnviða félagsins og mun styrkja alþjóðlegar tengingar Íslands til muna.
Nýr sæstrengur mun hljóta nafnið AUÐUR og er þar vísað til landnámskonunnar Auðar djúpúðgu Ketilsdóttur sem sigldi frá Skotlandi eins og fjallað er um í Laxdæla sögu.

Gert er ráð fyrir að nýr afhendingarstaður verði þróaður í Glasgow eða Edinborg. Þaðan liggja öflugar tengingar til helstu fjarskiptamiðstöðva Evrópu, þar á meðal London, Dublin, Amsterdam og Norðurlanda. Með þessu stækkar net Farice verulega og eykur bæði sveigjanleika og afhendingaröryggi auk þess að stytta umferðartíma milli Íslands og helstu fjarskiptamiðstöðva í Evrópu.
Sjávarbotnskönnun vegna lagningar strengsins er fyrirhuguð sumarið 2027. Ef áætlanir ganga eftir verður strengurinn tekinn í notkun árið 2030. Nýi strengurinn mun taka við mikilvægu hlutverki í ljósi þess að FARICE-1, elsti strengur félagsins, verður 30 ára árið 2033. Með nýjum streng er tryggt að endurnýjun innviða fari fram með góðum fyrirvara. Gert er ráð fyrir að strengurinn verði búinn mjög mikilli flutningsgetu til að mæta ört vaxandi þörfum, meðal annars vegna uppbyggingar gagnavera. Áætlað er að hann verði með 16–24 ljósleiðarapör.
Farice stefnir að því að fjármagna verkefnið án aðkomu ríkissjóðs.
Þorvarður Sveinsson, framkvæmdastjóri Farice:
„FARICE-1 er okkar elsti sæstrengur og hefur þjónað tilgangi sínum mjög vel. Það er hins vegar orðið tímabært að styrkja fjarskiptainnviði Íslands enn frekar og byggja nýjan og öflugri sæstreng. Þörf markaðarins liggur fyrst og fremst til Evrópu og mikilvægt fyrir Ísland að vera með tengingar inn í netmiðjur álfunnar. Þá eru Norðurlöndin að styrkjast verulega sem gagnaverssvæði og því mikilvægt að gagnaverin hér á landi geti tengst þangað. Sæstrengurinn AUÐUR mun marka tímamót í alþjóðlegum fjarskiptatengingum Íslands, styrkja stöðu landsins þegar kemur að stafrænum innviðum og skapa aukin tækifæri fyrir atvinnulíf, gagnaver og alþjóðlega þjónustu. Auður hin djúpúðga þótti djúphyggin, skynsöm og vitur kona sem tengdi Ísland og Skotland. Okkur þykir því viðeigandi að nefna nýjan gagnaflutningastreng Íslands í höfuðið á henni“
Nánari uppýsingar veitir:
Þorvarður Sveinsson
Framkvæmdastjóri Farice
Sími: 669 9222
vardi@korda.is
Um Farice
Farice er í eigu íslenska ríkisins og á og rekur þrjá fjarskiptasæstrengi sem tengja Ísland við Evrópu og rekur varaleið fjarskipta um gervihnetti fyrir mikilvæg fyrirtæki og stofnanir.
Fleiri fréttir
1. september 2026
Korda tekur til starfa 1. september
Sameinað félag Farice, Öryggisfjarskipta og tæknihluta Neyðarlínunnar mun bera nafnið Korda og verður líflína neyðar- og öryggisfjarskipta á Íslandi og tenginga við umheiminn.
22. desember 2025
Farice, Öryggisfjarskipti og tæknihluti Neyðarlínunnar sameinast
Ákveðið hefur verið að sameina Farice ehf., Öryggisfjarskipti ehf. og tæknihluta Neyðarlínunnar ohf.